|
|
24.12.2008 16:50:47 / Bryndís
Gleðileg jól kæru vinir! Hafið það rosalega gott um jól og áramót og megi næsta ár ekki vera jafn slæmt og búið er að spá. Þetta reddast alltaf einhvern veginn er það ekki? Verum bara bjartsýn og ákveðum að næsta ár verði alveg frábært!! Love u all og ég stefni á að skrifa oftar á næsta ári en ég geri núna.
»
22.11.2008 22:57:46 / Bryndís
Hérna er flottur listi sem ég tók af síðunni hjá Írisi systir: 1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara
á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.
Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!
En, ef þú bíður of lengi,mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun .
»
17.09.2008 21:33:55 / Bryndís
Er brjálað að gera, samt ekki eins mikið og hjá mörgum hérna inni! Er auðvitað í rúmlega 100% vinnu, heimilið og svo er ég í 3 fögum í leikskólabrúnni í FG og í fjarnámi í uppeldisfræði í FG, skilaði smá verkefni í upp í gærkveldi bara í gegnum tölvuna og fékk 10 fyrir það, verst að þetta verkefni gildir bara 5% og mun prófið gilda 75%. Er í skólanum á miðvikudögum frá 4-7 og svo nokkra laugardaga, verð einmitt í skólanum þegar réttirnar eru hjá tengdapabba hennar Bjarneyjar og stóðréttirnar verða á Króknum, svo ég kemst í hvorugt  , en svona er þetta bara. Jæja ég er hætt, vildi bara þakka mömmu og Írisi systir fyrir hvað þær hafa verið duglegar að skutla mér og jafnvel sækja mig líka í skólan, ég er náttúrulega með besta fólkið í kringum mig, er það ekki ?  Mér finnst það a.m.k. !!! Ok. bið að heilsa. Love u all!
»
22.07.2008 20:45:32 / Bryndís
Hæ þið sem nennið að kíkja hér inn.. Myndirnar eru komnar inn á barnaland. Ekki jafnmargar og í fyrra en samt alveg nóg. Er búin að vera svo mikið í tölvuna þessa síðustu daga að ég nenni ekki miklu meira núna, en sagan kemur næstu vikuna eða svo.. Love u all. Kveðja. Bryndís. ps; Svava Magg, til hamingju með daginn í dag..
»
30.06.2008 21:46:13 / Bryndís
Það er nú svolítið langt síðan ég skrifaði síðast og hef ég bara ekki verið að nenna að fara í tölvuna síðustu vikur!! Það hefur auðvitað fullt af fólki átt afmæli og vill ég óska þeim til hamingju með það, en auðvitað verð ég að senda elskunni minni honum Steina mínum afmæliskveðjur en hann átti afmæli í gær og er hann orðinn 29 + X (er 5 árum eldri en ég). Svo fórum við auðvitað í 4 fermingarveislur og óska ég þeim öllum til hamingju með það . Takk krakkar fyrir góða helgi þegar við héldum uppá fermingarafmælið, þetta var rosalega gaman og langaði mig ekkert heim aftur og ef kallinn og börnin hefðu verið með þá hefði ég alveg viljað stoppa lengur en þá hefði ég líka ekki haft alveg svona mikinn tíma með ykkur, svo að það var kannski ágætt að þau væru heima!! Nú styttist í útlönd og er ekkert smá gott að vera komin í sumarfrí, fer í klippingu á morgun og eins að kaupa mér smávegis af fötum, því ég finn ekki öll útlandsfötin mín, veit ekki hvað varð um þau í flutningunum, það er svona þegar aðrir en maður sjálfur er að pakka og það er kannski ekki allt merkt, en ég er samt þakklát fyrir hjálpina.. Jæja þetta er komið gott.. Vonandi líða ekki aftur 2 1/2 mánuður í næsta blogg, og svo fljótlega eftir að við komum heim koma myndir inn á barnalandssíðuna hjá krökkunum.. .. Love u all.
»
18.04.2008 07:50:46 / Bryndís
Elsku Bjarney systir! Innilega til hamingju með daginn (á miðvikudaginn var). Okkur þykir voða vænt um þig. Bestu kveðjur frá Burknavöllunum!
»
10.04.2008 21:04:43 / Bryndís
Elsku Íris systir Garðar Freyr frændi og Sandra vinkona!! Innilega til hamingju með daginn!! Afmæliskveðja frá okkur öllum á Burknavöllum.


»
16.03.2008 16:43:18 / Bryndís
Jæja þá eru að hellast yfir dótturina hlaupabóla , vonandi verður ekki eins slæm og þegar Bjarni Salvar fékk hana. Læknar höfðu ekki séð annað eins, tóku myndir til að setja í læknarit og barnið var með lyf í æð í 5 daga og svo þurfti ég að koma með hann í 5 daga þar á eftir, því hann fékk blóðeitrun eða eitthvað svoleiðis og var settur í saltvatnsbað 2x á dag frá þriðjudegi fram á fimmtudag-föstudag, en hann var mep yfir 40 stiga hita á sunnudeginum þegar ég fór með hann inn á bráðamóttöku barna (þegar það var 1999), en vonandi sleppur prinsessan betur, hún er nú sofnuð hérna við hliðina á mér núna, enda var djamm í gær, takk fyrir okkur mamma og pabbi, og komum við heim um kl. 22.40. og kom Birgitta Líf (hennar Bjarneyjar systir) með okkur og fékk að gista og sofnaði hún rúmlega 23.10 og voru þær frænkur vaknaðar kl. 7 í morgun (ég heyrði í þeim þá, kannski þær hafi vaknað fyrir þann tíma) 0g var ég ekkert rosalega ánægð því ég fékk mér nokkra bjóra eftir að börnin sofnuðu í gærkvöldi og sofnaði rétt fyrir kl. 5 í morgun (maður virðist geta þetta stundum ennþá) . Svo fór Birgitta áðan um kl. 15.15, en Bjarni Salvar er búinn að vera mikið úti með stelpurnar í dag (örugglega í um 4 tíma = ), fór með þær út í leikskóla/skóla og líka hérna úti í rólunum. Jæja ég ætla að hætta núna og já Íris við verðum að fara að hittast oftar!! Love u all!!
»
14.03.2008 21:10:12 / Bryndís
Hún elsku mamma mín á afmæli á morgun og viljum við, þ.e. fjölskyldan, óska henni innilega til hamingju með morgundaginn og vonandi verður hún orðin hress, en aldrei þessu vant er hún veik  , hún er með flensuna greyið. Vonandi verður hún orðin hress á mánudag því þá eru þau hjónin að fara erlendis (eins og fleiri þessa dagana hhhmmm.). Skrifa meira síðar um það sem hefur verið að gerast síðasta mánuðinn; árshátíð, fórum í Skálafell og krakkarnir renndu sér á snjóþotu, bekkjarkvöld hjá Bjarna og tónlist/ söngvakennsla hjá Sigrúnu og margt fleira!!  Eigiði góða helgi, börnin eru bæði sofnuð, Sigrún bað um að fá að fara að sofa um 20.30 og Bjarni er sofnaður frammi í stofu yfir Gettu betur!! Love u all!!
»
19.02.2008 18:48:59 / Bryndís
Í dag er hún litla stelpan mín að verða stór, því nú er hún orðin 5 ára gömul, jjii hvað tíminn er fljótur að líða, þetta verður orðið fullorðið áður en maður veit af!!  . En hún er alltaf jafn (eða oftast) ljúf og góð og eru þær sko alveg sammála því á deildinni hennar á leikskólanum. Hún er svo ljúf og góð og hjálpsöm og dugleg og allt svoleiðis var mér sagt í foreldraviðtalinu í vikunni, (enda á líka svo frábæra foreldra, er það ekki??), ekkert nema gott um það að segja..  . Jæja en nóg um dúlluna mína, því hún Gýja "gamla" bekkjarsystir mín á líka afmæli í dag og vil ég óska henni líka til hamingju með daginn. Það var rosalega gaman að hitta ykkur, "gömlu" bekkjarsystkinin sem eru hérna fyrir sunnan, um daginn, sumir höfðu breyst svolítið en aðrir ekki  . Jæja ég segi bara takk fyrir í bili. Love u all.
»
13.02.2008 20:03:46 / Bryndís
 Er alveg brjál! Sé ekki síðuna mína, það kemur
bara error eitthvað dæmi, þvílíkt vesen. Spurning hvort maður fari
ekki bara á hin staðinn sem nokkrir eru komnir á, kannski það sé
ekki jafn mikið vesen og hefur verið hérna fram til þessa  .
Sjáum til hvort ég komist í þetta núna, ekkert mál að komast í
vefstjórnina en svo gerist ekki neitt !!!!!
»
11.02.2008 20:11:42 / Bryndís
Jæja, þá er komin ný vinnuvika og var gaman að hitta krakkana í morgun á leikskólanum, þótt það sé alltaf tilhlökkun að fá smá frí, þótt það sé kannski bara yfir helgi, þá er alltaf gaman að hitta þau, þau eru svo frábær (a.m.k. flest). En þótt mín börn séu stundum svolítið (og stundum mikið óþekk þá eru þau nú eiginlega bara best, ég er alveg hlutlaus (hhhmmmm), þau eru nú ekki alveg svona óþekk eins og sum önnur börn og auðvitað er ég ekki að tala um börnin í fjölskyldunni, því þau eru svo góð og skemmtileg og geta sko alveg verið stillt (og ég er að tala í fullri alvöru), ég dýrka öll þessi börn í kringum mig og var ekkert smá gaman að fá þau í afmælið í gær og auðvitað var líka gaman að fá alla hina líka og ég segi bara takk fyrir góðan dag og fyrir krakkana (mína), þau voru rosalega ánægð með gjafirnar og fá alla gestina í afmæliskaffi og það besta er að allir afgangar eru búnir, ég tók með mér súkkulaðitertuna og gulrótarkökuna í vinnuna og var þetta allt klárað (og ég fékk mér ekkert af hvorugri tertunni), en Steini tók með sér rjómatertuna og kom hann með smá bita heim, sem Bjarni Salvar kláraði. Og auðvitað var búið að ganga frá öllu í gærkveldi, handþvo bollastellið og hnífapörin og henda pappadiskum og glösum og var þetta bara rosalega skemmtilegur dagur og ég segi bara TAKK FYRIR KOMUNA, börnin ánægð og foreldrarnir ánægðir. Love u all!!
»
06.02.2008 20:29:12 / Bryndís
Jæja! Nú er stóri strákurinn minn orðinn 10 ára. Hann varð það í gær , 5.febrúar, en þá var bloggið eitthvað að stríða mér svo ég gat ekki komist inn á neina síðu hjá blog.central. Sprengidagurinn var í gær líka eins og þið vitið og eldaði mín saltkjöt og baunir (en ég var búin með túkallinn) og aftur í kvöld, svo barnið fékk þetta bara í afmælismat, en hann heldur uppá bekkjarafmælið á morgun og koma 8 strákar strax eftir vinnu og horfa á dvd og borða pizzu og fá ís eða snakk í eftirétt og verður afmælið til kl. 18.30 og fer ég svo út eftir tiltektina og hitti hluta af "gömlu" bekkjarsystkinunum á Súfistanum á meðan kallinn verður heima með börnin og ætlum við aðeins að ræða fermingarmótið í vor/sumar. Hérna eru allir hressir og kátir, algjör sukk dagur í dag; hamborgarar í matinn í skólanum/leikskólanum, weetos í morgunmat, snakk handa krökkunum eftir að búið var að slá köttinn úr tunnunni og spurðu nú sum hvar kötturinn væri, áður en við byrjuðum, svo voru svali (ávöxtur) og ávextir í kaffitímanum. Eins þurfti ég mikið að útskýra í gær að það væri sprengidagur en ekki annar sprengjudagur. Frikki á afmæli á föstudag og óska ég honum til hamingju með daginn (Friðrik, gamall bekkjarbróðir) og eins á hún Jenna "stór" afmæli líka á föstudag. Best að hætta þessu núna og athuga hvort að hún sé ekki bara heima svo ég geti heyrt í henni. Jæja, þetta er komið nóg í bili og skrifa ég bráðum aftur, en örugglega ekki um helgina því þá er ég að undirbúa afmæli/fjölskyldukaffi, því Bjarni Salvar átti afmæli í gær og svo verður Sigrún Björg, stelpan mín, 5 ára 19. febrúar og auðvitað hef ég bara eitt fjölskylduafmæli þegar það er svona stutt á milli þeirra. Jæja takk og bless og skemmtið ykkur í skemmtilega veðrinu (eða þannig) sem er víst á leiðinni til landsins, eða a.m.k. hluta landsins. Love u all ..
»
20.01.2008 14:57:14 / Bryndís
Jæja, þá er komið aðeins meira. Ég komst ekki inn í Háskólan á Akureyri, en við vorum nokkrar í vinnunni sem sóttum um á leikskólabraut, þá í fjarnámi, því það átti að hleypa inn um 10% sem eru ekki með stúdentspróf, en svo voru svo margir með próf sem sóttu um að við komumst ekki inn og var þetta bara í þetta skiptið . Hún Aðalheiður á afmæli í dag og vildi ég bara óska henni til hamingju með daginn, en hún er gömul bekkjarsystir frá Skagaströnd. Við (gömlu bekkjarsystkinin) ætlum að hittast fyrir norðan og halda uppá 20 ára fermingarafmæli, vá hvað tíminn er fljótur að líða, við erum sko ekki orðin svona gömul skal ég segja ykkur!! Hérna hafa verið veikindi, fyrst streptókokkar og svo uppúr því fengum við inflúensu , öll nema Bjarni Salvar, en hann er með eitthvað hóstagelt eins og við hin , en hann fékk ekki hita og beinverki sem betur fer! Guðbjörg eða Sandra. Viljið þið endilega senda mér notendanafn og lo í vefstjórnina, ég kemst ekki inn þótt ég skrifi þetta sem Sandra sagði mér (hausinn hringsnýst svo orðin koma vitlaust á prent núna). Jæja, ég er hætt núna, heyrumst síðar!
»
05.01.2008 20:44:46 / Bryndís
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gömlu árin, elsku vinir/vinkonur. Er á lífi og skrifa meira síðar (ég veit ég hef sagt þetta í hvert skiptið sem ég skrifa hérna inn), en ég finn á mér að árið 2008 verði meira skrifað en í fyrra . Eins ætla ég að verða duglegri í síðunum hjá krökkunum. Þetta er nóg í bili, svo ég kveð bara núna. Love u all. Kveðja. Bryndís
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Könnun
Ertu búin/n að kaupa allar jólagjafir
Já
0 atkvæði
Nei, á nokkrar eftir.
2 atkvæði
Nei, á allar eftir.
0 atkvæði
Gef ekki jólagjafir
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 3
Talning
Fyrir 452 dögum
Loksins jól og kósý
Heimsóknir
Í dag: 0 Alls: 21342
|